miðvikudagur, maí 30, 2007

Around here

Meðan ég man:

Það verður ekki tekið af Bretunum að þeir elska hringtorg. Mein Gott!

That's all.

þriðjudagur, maí 29, 2007

London, Baby!

Síðasti dagurinn í Englandi runninn upp. Erum búin að vera í góðu yfirlæti hjá Gunnu og Eyjó í Norður-London. Kíktum í bæinn á fimmtudaginn og röltum framm og tilbaka um miðbæinn. Sáum Big Ben, Trafalgar Square, Covent Gardens og margt fleira.

Á föstudaginn var svo stefnan tekin á Hastings, þar sem brúðkaup Laurie og Jamie fór fram á laugardeginum. Við hittum fullt af fólki á föstudeginum sem var með Elínu í skólanum í Roskilde. Og náðum að fá okkur öl (eða tvo) með þeim.

Við vorum þetta líka fáránlega heppin með gistingu í Hastings. Elín pantaði á netinu gistingu á einhverjum Bed&Brekfast, og við vorum þetta líka heppin. Útsýni yfir Ermasundið og gestgjafarnir þvílíkt almennilegir. Vorum í það minnast heppnari með gistingu en sumir aðrir brúðkaupsgestirnir.

Brúðkaupið var svo í alla staði hin besta skemmtun. Presturinn alveg hreint stórskrýtinn. Og veislan góð. Sérstaklega miðað við hversu fáa ég þekkti.

Annars var maður kominn snemma í bælið, þar sem ég þurfti að keyra í London á sunnudeginum. Ég verð nú að segja að ég er ekkert mega-spenntur yfir umferðinni hér. Bæði er viðbjóðslega mikil umferð hér í London, og svo er þetta vinstri handar-stöff ekki alveg að rokka. Það hefur hins vegar gengið áfallalaust hingað til, 7-9-13 (þó að það hafi munað litlu einu sinni), og vonandi gengur aksturinn á Stansted vel.

Lag dagsins: London Calling með The Clash. Nauðsynlegt.

mánudagur, maí 21, 2007

Nescafé, það er kaffið.

Fjandans vesen að hafa verið með einhverjar meiningar um frekari ferðasögu frá Kóreu. Veit svei mér ekki hvort ég nenni að vera að rifja þetta upp. Spurning um nokkur athugasemda-korn í staðinn:

  • Mun betra flug til Kína núna en í fyrra. Í þetta skiptið náði ég að sofa aðeins. Mun betra.
  • Ég get varla hugsað mér súrari flugvöll til að millilenda á en í Beijing. Flugvöllurinn er ekkert sérstaklega spennandi, og Kínverjarnir eru alveg ferlegir með passa-kontrólið. Meira að segja fyrir þá sem millilenda.
  • Kórea er mikið fjallaland.
  • Ég held að það verði heitt þarna í lok júní. Úff...
  • Hvað er með vískí-áhugann þarna? Maður var eins og sauður á pöbbunum með öl. Það voru allir með viskí.
  • Á þessum pöbbum voru einnig undantekningalaust húsbönd. Bönd þessi voru öll frá Filippseyjunum, og voru flest býsna vel spilandi. Hávaðinn var þó alveg með ólíkindum. Þó að það væru örfáar hræður að reyna að spjalla saman, þá spiluðu böndin á fullu trukki. Óþarfi að leyfa fólki að komast um með að spjalla saman.
  • Bjórsnakkið finnst mér betra í Evrópu. Kýs frekar popp eða hnetur frekar en þurkaðan kolkrabba.
  • Það er ómögulegt að kaupa ferðatösku fyrir klukkan 9 á morgnana.
  • Sem þýddi að ég þurfti að fórna minni tösku undir símana sem ég þurfti að ferja til Köben.
  • Mér líkar við Tokyo. Væri meira en til í að stoppa aðeins meira þar. Spurning um að fljúga í gegnum Tokyo í næsta mánuði aðra leiðina og stoppa svo í Beijing á hinni leiðinni. Svona til að ná að versla aðeins.
  • Sushi í Tokyo. Jess.
  • Eftir ellefu tíma flug er fátt súrara en vera stopp í tollinum í tvo tíma. Urrr.
  • Ég á enn eftir að henda slatta af myndum úr ferðinni inn. Hefst vonandi.

Stefnan er svo tekin á London á miðvikudag. Og Hastings á föstudag, þar sem við erum að fara í brúðkaup á laugardaginn. Veisla!

laugardagur, maí 19, 2007

Æ vonss hedd a görrl

Ég sé frammá að almennilegur pistill um Asíu-ferðina mína verður líklega ekki að veruleika. En hverjum er ekki sama?

Ég tók mig samt til og setti slatta af myndum inná myndasíðuna mína. Svona hinar og þessar myndir sem teknar eru síðasta árið. Fínt að koma þeim inn á vefinn. En ég viðurkenni að ég á eftir að henda fullt af myndum frá Kóreu-túrnum inn. Þetta kemur allt með kalda vatninu.

Við Elín hjóluðum til Snjólaugar og Péturs í kvöld og vorum þar í mat. Alveg eðal-kvöld. Og ballet-dæmið hjá Jakob var auðvitað hrein snilld.

Við sjáum til hvort að mér tekst að kommenta eitthvað af myndunum....Best að lofa sem minnstu.

Lag dagsins: Moonlight Shadow, ágætis eitíspopp.

miðvikudagur, maí 09, 2007

I've got wheels of solid steel

Hananú!

Þá er 10 daga dvöl í Kóreu senn á enda. Ætlunin var að fljúga til Beijing í fyrramálið, og svo heim. Það verður svo ekki. Í staðinn er stefnan tekin á Tokyo, þar sem ég verð í eina nótt og svo heim á föstudaginn. Eins og daninn segir, þá er maður "firmaets mand".

Annars er þetta búin að vera fín ferð. Súper veður. Maturinn miklu minna skerí en ég hafði átt von á. Reyndar er alveg hræðilegt að vera að borða þvílkt góðann mat en geta vart notið þess út af því að maður situr á hækjum sér.

Ég og Lars vinnufélagi minn gerðum ágæta ferð til Seoul um helgina. Þar sýndum við og sönnuðum að skipulagning er stórlega ofmetinn faktor. Við náðum að þvælast fram og til baka um þessa stórborg vandræðalaust og skemmtum okkur hið besta. Enda "Ze Djörman Kóstgard" brandararnir venjulega skammt undan.

Við brugðum okkur á Stríðsminjasafnið í Seoul. Þar voru hinar ýmsustu drápsvélar, og minnismerki um afrek þeirra. Að mörgu leiti undarlegt safn að koma á. En auðvitað töluvert önnur saga sem Kóreumenn búa við en Íslendingar.

Á sunnudaginn brugðum við okkur upp að landamærum Norðurs og Suðurs. Hinu svokallaðaða DMZ . Og ef það var merkilegt að koma á stríðsminjasafnið, þá var þetta útúr kortinu.

Stórfenglega súrrelalískt að rölta ofan í göng sem grafin voru til að gera innrás í nágrannaríkið. Eða að horfa yfir landamærin á "stærstu flaggstöng í heimi". Út af því að um það kepptust nágrannarnir víst lengi vel. Mein Gott. Ég hefði alla vega alls ekki vilja missa af þessari ferð. Frábær upplifun. Og ég mun henda inn myndum þegar ég kem heim.

Steff Houlberg í Kóreu!

"Way Out, man..."

Ég lét pússa skónna mína. Fleiri myndir eiga eftir að fylgja. Be warned...

Síðasta Lest til Norður-Kóreu.