You're twice as cold
Rakst á þrjá ísbirni á beit við áttundu brautina á golfvellinum í gær.
Meeee.
Kannski að maður sé virkilega að verða "Oldster".
Byrjaði vikuna á að gleyma poka í leigubílnum sem ég tók í vinnuna. Það var svosem ekki mikill fjárhagslegur skaði, en í pokanum voru ESD-inniskórnir mínir. Þetta varð til að maður var alveg þvílíkt sáttur í upphafi vinnudags. Halelújaogháarjúdúing-sáttur.
Nema, að ég minnist svo á þetta við einn kínverskann kollega minn. Og sá hinn sami gekk í málið. Fékk kvittunina frá túrnum og hringdi svo nokkur símtöl. Og skóna á ég að fá færða á hótelið í morgunsárið í fyrramálið.
Get ekki sagt að ég hafi átt von á þessari lendingu.
Kominn til Kína. Svosem ekkert meirihátta spenntur fyrir að hanga hér í 12 daga.
Hins vegar komst ég í þokkalegasta skap þegar ég steig á rúllustigann og sá þar viðvörunarskilti sem á stóð: "Watch out for child and oldster". Umm....Okei.
Ah, það þarf lítið til að gleðja vesælann.