laugardagur, apríl 23, 2005

All my friends

Ég, Bruno og Thomas kíktum á amerískann fótbolta á Gentofte Stadion í kvöld. Ágætis stemming og allt, en hræðilegur leikur. Ég held að það verði erfitt að fá Thomas með á annan leik. Hann eyddi öllum seinni hálfleik með auga á klukkunni.

Næsta föstudag er svo árshátið DTU. Gríðarleg stemming og the Usual Suspects hafa orðið sér útum miða á herlegheitin. Í ár ætlum við ekki að láta nægja að mæta á ballið, heldur er stefnt á allt offissjal dæmið. Við og Henrik prins á svæðinu.

Þarna verða ekki nema c.a. 2000 manns í mat, þannig að það verður fróðlegt að sjá hvernig það gengur allt fyrir sig. Þetta er líka í eina skiptið á árinu sem DTU-nemar dressa sig upp. Og til að vera með í stemmingunni er ég mikið að spá í að kaupa mér smóking fyrir kvikindið. Drekka svo hristann martíni um kvöldið. Eða eitthvað í þá áttina.

Skítakuldi í Köben þessa dagana. Sveiattann.