fimmtudagur, júní 15, 2006

China in your hand.

Mér finnst svindl að reyna að hringja í mann af tónleikum með Roger Waters. Illa gert.

Sem betur fer var ég fastur inni í verksmiðju í Finlandi símalaus og missti því af téðu símtali.

Annars fínt að vera kominn heim. Brakandi blíða og 17.júní á laugardag. Þá verður farið á Amager strand til að kaupa harðfisk og fagna með öðrum Íslendingum. Veisla.

Líklega er ég að fara til Kína eftir 4 vikur. Ágætt.