fimmtudagur, júní 08, 2006

Aint got no number

Var ég búinn að segja frá nágrönnunum? Þeir sitja hér úti í porti alla daga núna og drekka bjór. Minna eilítið á danska útgáfu af Norm og Cliffy. Og nei, nei, maður er ekkert öfundsjúkur.

Kominn með enn eina Discworld bókina. Að þessu sinni er það Mort. Ágætt að vanda.

Annars komst maður frá Íslandi þokkalegur. Reyndar lenti ég í smá pallasmíði hjá Sjonna og Beggu á laugardaginn. Það endaði svo auðvitað með einhverri alverstu ferð yfir hafið daginn eftir sem ég hef lent í. Ég lofa því, að einn daginn á ég eftir að læra að koníak er ekki það gáfulegasta kvöldið fyrir flug. Nú, eða ekki...

Kvikk túr til Finlands á sunnudag. Og sumarpartí Nokia á morgun. Ég hugsa að ég taki því rólega á blessuðum '70 diskófötunum sem maður átti að mæta í.

Lag dagsins er Wise Up með Aimee Mann.